Sumarhús
Vefverksmiðja og hugbúnaðarsmiðja á eigin grunni
Smiðjan á bak við framleiðsluvefina: eigin vélar, eigin gögn, eigið efni — erindrekakerfi vinna verkin, mannshöndin ákveður.

Sumarhús byrjaði sem spurning: hvað gerist ef eitt lítið verkstæði á allan sinn grunn sjálft — vélarnar, gögnin, kóðann, afritin — og lætur erindrekakerfi vinna verkin undir mannlegri ákvörðun?
Svarið er orðið að vefverksmiðju. Í smiðjunni verða til framleiðsluvefir — meðal annars snjallraedi.is, höfundarvefur Giorgio Baruchello og fleiri — hver á sínum einangraða grunni: eigin gagnagrunnur, eigið efniskerfi, sjálfvirk skilríki, afrit á hverri nóttu. Kóðinn býr á eigin Git-þjóni. Ekkert lag er upp á aðra komið.
Aðferðin er alltaf sú sama. Velja vel. Sannreyna. Skila á eigin grunni.
Væntanlegt: Sumarhús Skunk Works.
Tæknistaflinn
Tengd verkefni
Sjá öll verkefni →
BORG
Öruggur og samþættur gervigreindarvettvangur Háskólans á Akureyri. Sameinar ytri gervigreindarþjónustur og öfluga vinnslugetu innanhúss til að tryggja gagnafullveldi háskólans.

Red Box
Erindrekar safna fréttunum, sía þær og endurskrifa — ég stýri veiðinni. Þétt fréttabréf tvisvar í viku, og kerfið sjálft er opið.

Beyond Fragmentation
Af hverju stjórnarhættir gervigreindar mistakast af ásettu ráði — og af hverju öll skaðleg áhrif tækninnar eiga rætur í mannlegum stjórnarháttum.